Brattabrekka, brött brekka upp Bratta

Einhvern tíman var ég skammaður af heimamönnum þegar ég sagðist hafa komið yfir Bröttubrekku.

Því vildi ég koma því á framfæri að brekkan heitir eftir fjallinu sem aftur heitir Bratti, því væri réttast að segja að búið sé að moka Brattabrekku.Þetta er ekki bara brött brekka, þetta er brekkan upp Bratta.

 Endilega leiðréttið mig ef þið vitið betur. 


mbl.is Verið er að moka Bröttubrekku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vildu þeir ekki bara...

endurvinna tækjabúnaðinn þeirra?

þetta gæti hafa verið stór miskilningur, verkamennirnir héldu kannski að tökuliðið hafi verið að koma með úrgang til endurvinnslu.

Síðan hefur allt farið út um þúfur þegar tökuliðið vildi ekki sleppa tækjunum sínum.


mbl.is Ráðist á tökulið 60 Minutes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Copy Paste

Ég nenni ekki einu sinni að athuga hvaðan, en þeir nenna ekki lengur þýða/útskýra titla erlendra ráðamanna!

Hvernig væri að segja: "frambjóðendur í stöðu president í Bandaríkjunum eru Obama og McCain"

hér er útskýring á hvað Løgmaður þýðir á færeysku. ath. þetta er á færeysku :-)

 

 


mbl.is Hver verður lögmaður?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föng eða Fangar?

Ég var lengi að átta mig á því hvað fyrsta línan í þessari frétt þýddi, svo áttaði ég mig á því og komst að því að þessi frétt er beinþýdd héðan
mbl.is Auðurinn kemur að utan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

80 milljónir

Ætli það seljist ekki upp nokkuð hratt, og þá koma eldsnöggt rúmar 80 millur í kassann hjá tónleikahöldurum!

Hvað ætli Clapton taki fyrir giggið? 


mbl.is 10 þúsund miðar seldir í forsölu á tónleika Claptons
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband